Sýningin hefst í dag

Undirbúningur fyrir Garðyrkju- og blómasýninguna Blóm í bæ er nú á lokastigi. Í gærkvöldi unnu sjálfboðaliðar að hreinsun beða í Lystigarðinum og blómaskreytar unnu út um allan bæ við hinar glæsilegustu skreytingar. Gríðarlegu magni af blómum hefur verið ekið inní bæjarfélagið og prýða þau nú meðal annars stæðilegan gíraffa, apa og ljón á sýningarsvæðinu auk þess sem í Lystigarðinum er komin upp sýning á trjáplöntum og sumarblómum. Í íþróttahúsinu er nú unnið hörðum höndum að uppsetningu á glæsilegri blómasýningu sem opnar um leið og sýningarsvæðið allt á morgun, föstudag kl. 12. Fjöldi dagskráratriða verður alla helgina og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Tískusýning blómanna er skemmtileg nýjung sem verður á sviði í Lystigarðinum laugardag og sunnudag. Fræðslugöngur um skógræktarsvæði Hvergerðinga og söguslóðir verða alla dagana. Örfyrirlestrar, ljóðablómastaurar, leitin að hæsta tré Hveragerðis og garðasúpa á laugardagskvöldinu er meðal þess sem gestir sýningarinnar geta notið um helgina. Setning sýningarinnar fer frá í Lystigarðinum í dag, fimmtudag, kl. 17. Allir eru hjartanlega velkomnir en þar verður sólstöðum fagnað að norrænum sið.

Rétt er síðan að minna á að allir dagskrárliðir sýningarinnar eru ókeypis. Frá höfuðborgarsvæðinu gengur Strætó til Hveragerðis en leið 51 fer frá  Mjódd í samræmi við áætlun. Áætlunin er á www.straeto.is

 

Blóm í bæ í þriðja sinn

Sumarið 2009 var í fyrsta sinn á Íslandi haldin heildstæð garðyrkju- og blómasýning sem tók mið af faginu í heild sinni.  Garðplöntur, afskorin blóm, skrúðgarðyrkju, blómaskreytingar, landslagsarkitektúr, grænmetisræktun og annað sem tengist græna geiranum á Íslandi mátti sjá á fyrri sýningum. Ýmsir viðburðir voru í gangi á meðan á sýningu stóð og fjöldinn allur af gestum sóttu hátíðirnar heim.

 

Þema sýningar

Í þetta sinn er þema sýningarinnar „Skógur“ (alþjóðlegt ár skóga hjá Sameinuðu þjóðunum) og af því tilefni hefur Skógræktarfélagi Íslands boðið að vera gestir sýningarinnar í ár. Skreytingar sýningarinnar munu verða í skógarstíl og verður ævintýralegt að skoða þær.

 

Samkeppnir

GraskarlasamkeppniBlóm í bæ og Hverablóm hafa tekið höndum saman um skemmtilega samkeppni að búa til skemmtilegasta og frumlegasta graskarl eða graskerlingu Hveragerðis. Hverablóm mun halda utan um keppnina og afhenda gögn og leiðbeiningar í verslun sinni, að Austurmörk 2.  Innsendar lausnir verða til sýnis á blómasýningunni í Íþróttahúsinu á Blóm í bæ. 

Lumar þú á snilldaruppskrift að blómaköku ársins 2011?
Blóm í bæ og Almar bakari hafa tekið höndum saman um samkeppni meðal bæjarbúa að búa til Bestu blómakökuna 2011, aðalhráefnið: Rabbabari. Við leitum að girnilegum og blómlegum sumarkökum. Almar bakari tekur á móti keppniskökum í verlsun sinn að Sunnumörk 2, föstudaginn 24. júní. Eintakið skal vera merkt með nafni og símanúmeri, uppskrift skal fylgja með. Innsendar kökur verða til sýnis í matartjaldinu á Blóm í bæ.

Sölu- og sýningarsvæði verða í boði fyrir þá aðila sem þess óska, en fagsýningar verða á sérstökum svæðum.

 

Samstarfsaðilar

Samstarfsaðilar sýningarinnar eru Hveragerðisbær, Samband Garðyrkjubænda og undirfélög, Landbúnaðarháskólinn að Reykjum, Félag íslenskra landslagsarkitekta, Félag blómaskreyta, Félag skrúðgarðyrkjumeistara, Garðyrkjufélag Íslands, Grænn markaður, Samasem ehf. og Sölufélag garðyrkjumanna.