Sjálfboðaliðakvöld fyrir sýningu

skrifað 11. jún 2012
IMG_8619

Enn sem fyrr leitum við til bæjarbúa um auka hendur á síðustu metrunum, margar hendur vinna létt verk!

Við tökum fagnandi á móti þeim sem sjá sér fært að aðstoða okkur í því sem þarf að gera síðustu kvöldin fyrir sýningu. Ýmis verk verða í boði.
Þriðjudagskvöldið 19. júní og miðvikudagskvöldið 20. júní verður sérstaklega kærkomið að sjá bæjarbúa á planinu við Mjólkurbúið, mæting klukkan 19:00.

Við hlökkum til að sjá ykkur.

Fleiri fréttir