A-útisvæði | B-Markaðssvæði | C-Innisvæði

Fyrir ykkur sem hafið áhuga á að koma að þessari sýningu er gott að vita að sýningarsvæðinu er skipt í þrjú svæði. Svæðin eru:
A – Útisvæði. Þetta svæði er staðsett í skrúðgarðinum og hentar vel þeim aðilum sem ætla sér að sýna stærri hluti líkt og gróðurhús og minni garðyrkjuvélar.
B – Markaðssvæði. Markaðssvæðið verður við Skólamörk, en götunni verður lokað á meðan sýningunni stendur, og við bílastæði sem tengist íþróttahúsinu.

C – Innisvæði. Innisvæðið verður staðsett í íþróttahúsinu. Því verður skipt upp í bása og hentar vel fyrir þá sem eru með viðkvæmari hluti þar sem þetta er upphitað sýningarsvæði.
Blómaskreytar bjóða fram þjónustu sína við skreytingar á básum og uppröðun. Vinsamlega hafið samband við umsjónarmann sýningar asta@hveragerdi.is vegna nánari upplýsinga.