Um sýninguna

Garðyrkju- og blómasýningin „Blóm í bæ“ er nú haldin í  þriðja sinn, í Hveragerði, eftir mikla velgengni síðastliðin tvö  sumur. Mikill fjöldi gesta sóttu hátíðina heim í frábæru veðri og nutu fjölbreyttrar sýningar á öllu því sem tilheyrir græna geiranum enda sýningasvæðið í alfara leið fyrir ferðamenn og aðeins í um 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborginni.  

Fjöldi viðburða á sviði garðyrkju, umhverfismála og íslenskrar framleiðslu verða á sýningunni. 

Í ár verður þema sýningarinna „Skógur“ og koma skreytingar og annað til með að bera keim af því. 

 

 

Sýningar, markaðir og ýmsar keppnir verða allan sýningartímann. 

Lífleg markaðsstemning í sölutjöldum verður allsráðandi með skemmtilegum uppákomum. 

Sýningin er fjölskyldumiðuð þar sem lögð verður áhersla á að gera börnum hátt undir höfði og verður góð aðstaða til gistingar í boði á tjaldsvæði með allskyns uppákomum. 

Gjaldtöku fyrir markaðsbása verður haldið í lágmarki með það að markmiði að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í sýningunni.