Dagskrá 2019

Fimmtudagur 13. júní

  • 16:30-18:30 - Sýning á Bókasafninu í Hveragerði - Allir velkomnir
    Áslaug Saja Davíðsdóttir opnar sýningu á verkum sínum á Bókasafninu í Hveragerði. Áslaug mun taka á móti og spjalla við gesti og gangandi. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir.

  • 21:00 – Tónleikar með Hjálmum í Skyrgerðinni

Föstudagur 14. júní

  • 14:00 – 15:30 – Opið hús á Heilsustofnun NLFÍ – Allir velkomnir
    Berum ábyrgð á eigin heilsu - Alma Möller landlæknir, Haraldur Erlendsson forstjóri Heilsustofnunar og Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsustofnun.
    Öllum gestum boðið í te og meðlæti.

  • 16:00 – Sundlaugin Laugaskarð - Samstarfssamningur, á milli Embætti Landlæknis og Hveragerðisbæjar, um að bæjarfélagið bætist í hóp Heilsueflandi samfélaga, undirritaður í Sundlauginni Laugaskarði.

  • 17:00 – Hátíðarsetning í Lystigarðinum – ávörp og tónlistaratriði á sviði.

  • 17:30 - Opnun sýningar í Listasafni Árnesinga GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ. Vignir Þór Stefánsson leikur af fingrum fram á píanó.
  • 20:00 - Knattspyrnuleikur á Grýluvelli, Hamar - Hörður Í.

Laugardagur 15. júní

  • 10:00 – Jóga með Ragnheiði Eiríksdóttur í fallegu umhverfi í Lystigarðinum
  • 11:00 – Söguskilti afhjúpað við Hveragerðiskirkju Sóknarpresturinn séra Gunnar Jóhannesson býður gesti velkomna í kaffi í kirkjunni eftir athöfn.

  • 12:00 - Dr.Bæk - Bókasafnið Sunnumörk - Ástandskoðun á reiðhjólum
    Öllum er boðið að mæta með hjólin sín og fá ástandsskoðun hjá Dr. Bæk. Farið er yfir bremsur, gíra og skyldubúnað reiðhjólsins. Doktorinn gefur út skoðunarvottorð þar sem kemur fram ef eitthvað þarf að gera á verkstæði. Best er að eigandi reiðhjólsins fylgi því til dokstorsins og fái persónulega leiðsögn um gott ástand hjólsins á meðan það er yfirfarið.

  • 12:00 – Bíó um Skáldagötuna í Hveragerði í Frost og Funa Hótel, Hverhamri

  • 12:00 – 18:00 – Sýning í Listasafni Árnesinga GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ. Tillögur í samkeppninni Úrgangur í Auðlind til sýnis í Listasafninu.

  • 12:00 – 18:00 Bæjarbúar bjóða heim – listsýningar og sölur Sjá nánar í græna rammanum

  • 13:00 – 17:00 – Sýning á vistvænum farartækjum v/Hótel Örk Rafbílar, rafskutlur o.fl.

  • 13:00 – Framtíð í samgöngum - sýn bílaframleiðenda. Sérfræðingur frá Mercedes-Benz kynnir nýjan EQC og fer yfir breytingar sem framundan eru í samgöngum.

  • 13:00 – 17:00 – Græni geirinn - Markaður í gróðurhúsinu Eden, Þelamörk Afurðir græna geirans til sölu, fjölbreytt sýning og sala á pottablómum. Heilsustofnun verður á staðnum og kynnir starfsemi sína og vörur beint frá býli, markaðir, sýning á páfagaukum frá Dýraríkinu, apanum hennar Ellýjar Vilhjálms o.fl.

  • 13:00 – 17:00 – Umhverfis- og bændamarkaður, Breiðumörk 21 Markaðstorg með nýjum og ferskum afurðum beint frá býli, vistvænar vörur, flokkunarílát o.fl.

  • 13:00 – 17:00 – Skottsala og nytjamarkaður við Breiðumörk 21.

  • 13:00 – 17:00 – Íslenskar landnámshænur frá Valgerði á Húsatóftum og og Íslenskir býræktendur kynna býrækt í Lystigarðinum.

  • 13:00 – 17:00 – Bananahúsið á Reykjum til sýnis fyrir gesti.

  • 13:00 - Úrslit í Hollustu-Kökukeppninni kynnt hjá Almari bakara.
  • 14:00 – 16:00 Ljúfir JAZZ tónar í Lystigarðinum, tríó Páls Sveinssonar.
  • 14:30 - Úrslit hönnunarkeppninnar: Úrgangur í Auðlind í Listasafninu.
  • 15:00 – Söguganga um Hveragerði með Nirði Sigurðssyni Lagt af stað frá inngangshliðinu í Lystigarðinn.

  • 15:00 – Þrjú bíó fyrir krakkana í Leikfélagshúsinu, Austurmörk 23 Frítt inn – sjoppa á staðnum.

  • 15:30 – Fjármálalæsi í Skyrgerðinni, Breiðumörk 25 Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum býður uppá fræðslu um fjármál heimilanna.

Sunnudagur 16. júní

  • 10:00 – Jóga með Ragnheiði Eiríksdóttur í fallegu umhverfi í Lystigarðinum.
  • 11:00 – Núvitundar-gönguferð með Bee Mc Evoy Verum heilshugar til staðar í fallegu umhverfi og upplifum í þögn. Lagt af stað frá Heilsustofnum NLFÍ, aðalinngangi.
  • 12:00 – 18:00 Bæjarbúar bjóða heim – listsýningar og sölur Sjá nánar í græna rammanum.
  • 12:00 – 18:00 – Sýning í Listasafni Árnesinga GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU stofngjöf Ragnars í Smára til Listasafns ASÍ. Tillögur í samkeppninni Úrgangur í Auðlind til sýnis í Listasafninu.
  • 13:00 – Er hundurinn þinn félagsfær ? – fræðsla í íþróttahúsinu v/Skólamörk Kristín Sigmars hundaþjálfari heldur fræðslufyrirlestur um hunda í þéttbýli. Allir velkomnir.
  • 13:00 – 17:00 – Sýning á vistvænum farartækjum v/Hótel Örk Rafbílar, rafskutlur o.fl.
  • 13:00 – Framtíð í samgöngum - sýn bílaframleiðenda. Sérfræðingur frá Mercedes-Benz kynnir nýjan EQC og fer yfir breytingar sem framundan eru í samgöngum.
  • 13:00 – 17:00 – Græni geirinn - Markaður í gróðurhúsinu Eden, Þelamörk Afurðir græna geirans til sölu, fjölbreytt sýning og sala á pottablómum. Heilsustofnun verður á staðnum og kynnir starfsemi sína og vörur beint frá býli, markaðir, sýning á páfagaukum frá Dýraríkinu, apanum hennar Ellýjar Vilhjálms o.fl.
  • 13:00 – 17:00 – Umhverfis- og bændamarkaður, Breiðumörk 21 Markaðstorg með nýjum og ferskum afurðum beint frá býli, vistvænar vörur, flokkunarílát o.fl.
  • 13:00 – 17:00 – Skottsala og nytjamarkaður við Breiðumörk 21
  • 13:00 – 17:00 – Íslenskar landnámshænur frá Valgerði á Húsatóftum og Íslenskir býræktendur kynna býrækt í Lystigarðinum.
  • 13:00 – 17:00 – Bananahúsið á Reykjum til sýnis fyrir gesti.
  • 13:00 – 17:00 – Opnar vinnustofur í gamla barnaskólanum við Skólamörk Myndlistarfélag Árnessýslu (efri hæð) og Handverk og hugvit undir Hamri (neðri hæð). Fallegir listmunir til sýnis og sölu. Handverksfólk að störfum.
  • 13:30 – Álfaganga um Hamarinn með Grétu Berg, Lagt af stað frá Hamarsvelli. Gréta leiðir okkur inn í heim álfa og tengsl þeirra við náttúruna.
  • 14:00 – Græni herinn kemur í heimsókn og gróðursetur trjálund við Þelamörk. Allir velkomnir.
  • 14:00-16:00- Endurhönnunarsmiðja í Listasafni Árnesinga Gestir hvattir til að koma og færa rusl í nýjan búning – hugvit, hönnun og útfærsla.
  • 14:00 – 16:00 Ljúfir JAZZ tónar í Lystigarðinum, tríó Páls Sveinssonar
  • 15:00 – Söguganga um Hveragerði með Nirði Sigurðssyni
  • 15:00 – Þrjú bíó fyrir krakkana í Leikfélagshúsinu, Austurmörk 23. Frítt inn – sjoppa á staðnum.
  • 15:00 – Bíó um Skáldagötuna í Hveragerði í Frost og Funa Hótel, Hverhamri.
  • 15:30 – Fjármálalæsi í Skyrgerðinni, Breiðumörk 25 Breki Karlsson frá Neytendasamtökunum býður uppá fræðslu um fjármál heimilanna.
  • 16:30 – Bíó um Skáldagötuna í Hveragerði í Frost og Funa Hótel, Hverhamri.
  • 20:30 – Þarf alltaf að vera grín ? – lifandi hlaðvarp (live show) í Skyrgerðinni. Miðasala á midi.is

Bæjarbúar bjóða heim – listsýningar og sölur

Opið laugardag:

  • 14:00 – 16:00 Velkomin að Bjarkarheiði 12 Jóhann Gunnarsson sýnir Lírukassa sína og leikur fyrir gesti kl. 14, 15 og 16.
  • 14:00 – 16:00 Velkomin að Kambahrauni 35 Gréta Berg opnar vinnustofu sína – hugleiðslusteinar, málverk o.fl. Einnig teiknar Gréta andlitsmyndir af gestum eftir óskum.
  • 12:00 – 17:00 – Opnar vinnustofur í gamla barnaskólanum við Skólamörk Myndlistarfélag Árnessýslu (efri hæð) og Handverk og hugvit undir Hamri (neðri hæð). Fallegir listmunir til sýnis og sölu. Heitt á könnunni.

  • 12:00 – 14:00 Velkomin í Bókasafnið í Sunnumörk Öllum er boðið að mæta með hjólin sín og fá ástandsskoðun hjá Dr. Bæk. Farið er yfir bremsur, gíra og skyldubúnað reiðhjólsins. Doktorinn gefur út skoðunarvottorð þar sem kemur fram ef eitthvað þarf að gera á verkstæði. Best er að eigandi reiðhjólsins fylgi því til dokstorsins og fái persónulega leiðsögn um gott ástand hjólsins á meðan það er yfirfarið.

Bókasafnið í Sunnumörk - Endurnýting á bókum

Á föstudeginum og laugardeginum verður hægt að koma við og skoða ýmiskonar föndur af afskrifuðum bókum. Sýndar verða ýmsar hugmyndir af því hvernig endurnýta má bækur og gefa þeim nýtt hlutverk. Áhugasamir geta spreytt sig á einföldum verkefnum. Allt efni og áhöld á staðnum.

Opið laugardag og sunnudag:

  • 12:00 – 17:00 Velkomin að Þelamörk 40 Sigurbjörg og Laufey eru með bílskúrssölu.
  • 12:00 – 16:00 Velkomin að Heiðmörk 5 Þór Hammer sýnir skrautdúfur og bréfdúfur í garðinum.
  • 12:00 – 17:00 – Opnar vinnustofur í gamla barnaskólanum við Skólamörk Handverk og hugvit undir Hamri (neðri hæð). Fallegir listmunir til sýnis og sölu. Heitt á könnunni.
  • 13:00 – 17:00 Velkomin að Borgarheiði 8V Gyða Jónsdóttir myndhöggvari og Linda Gísladóttir listaspíra verða með skúlptúra, myndverk, leirmuni o.fl. til sýnis og sölu.
  • 13:00 – 17:00 Velkomin að Borgarheiði 15h Erna Guðmundsdóttir er með bílskúrssölu – fallegir munir.
  • 13:00 – 17:00 Velkomin að Hraunbæ 28 Bílskúrssala – margt spennandi í boði
  • 13:00 – 17:00 Velkomin að Grænumörk 3 Bílsskúrssala – margt spennandi í boði.

Veitinga- og þjónustuaðilar bjóða gesti velkomna í bæinn og taka ávallt vel á móti gestum.

Kommóða með nýtt hlutverk